Eldhús 1

Innréttingar

Ertu að leita að smið til að setja upp innréttingu?
Uppsetning innréttinga er nákvæmnisvinna og mistök geta verið dýrkeypt. Fáðu fagmenn í verkið svo innréttingin sé rétt mæld, tryggilega fest og vandlega frágengin.

Við tökum að okkur uppsetningu eldhúsinnréttinga, baðinnréttinga, þvottahúsainnréttinga, fataskápa og annarra innréttinga fyrir heimili og fyrirtæki.

Hafðu samband og fáðu tilboð í uppsetningu á þinni innréttingu.

Öll smíðavinna er unnin af löggiltum iðnaðarmönnum með áralanga reynslu.

loft veggir

Veggir og loft

Vantar þig að setja upp léttan millivegg eða klæða veggi og loft?
Við tökum að okkur uppsetningu léttra milliveggja ásamt klæðningu veggja og lofta. Hvort sem þú vilt breyta rými, útbúa nýtt herbergi eða endurnýja veggi og loft sjáum við um verkið frá upphafi til enda.

Við sjáum meðal annars um gifsklæðningar, viðarklæðningar og frágang við dyr, horn og lista. Lögð er áhersla á nákvæmar mælingar, vandaða framkvæmd og snyrtilegan frágang.

Hafðu samband og fáðu tilboð í þitt verkefni.

Öll smíðavinna er unnin af löggiltum iðnaðarmönnum með áralanga reynslu.

parket

Parketlögn

Vantar þig vanan smið í parketlögn?
Að leggja parket er eins og púsluspil sem getur verið flóknara en það lítur út fyrir að vera. Skurðir við horn, dyrakarma og lagnir geta vafist fyrir mörgum. Svo er fátt leiðinlegra en parketlistar sem losna eða óvönduð samskeyti.

Við tökum að okkur parketlagnir fyrir heimili og fyrirtæki. Við sjáum um mælingar, lagningu parkets og uppsetningu parketlista með áherslu á nákvæmni og snyrtilegan frágang.

Hafðu samband og fáðu tilboð í parketlögn.

Öll smíðavinna er unnin af löggiltum iðnaðarmönnum með áralanga reynslu.