Gluggar og hurðir
Er kominn tími á gluggaskipti eða gluggaviðgerðir?
Við aðstoðum þig með ferlið frá A–Ö.
Við komum á staðinn og metum ástand glugga, svalahurða og útidyra. Förum yfir hvað er hægt að laga og hverju þarf að skipta út.
Ef þörf er á sjáum við einnig um múrviðgerðir, sprunguviðgerðir og málningu.
Í framhaldi færðu tilboð þar sem allt efni og vinna er innifalið.
Við vinnum með traustum gluggaframleiðanda sem við höfum átt í góðu samstarfi við í gegnum tíðina og framleiðir glugga sem standast íslenskar aðstæður.
Öll smíðavinna, múrviðgerðir og málun er unnin af löggiltum iðnaðarmönnum með áralanga reynslu.